Lýsing
Svo hægt sé að koma öflugum 40” jeppadekkjum undir Land Cruiser 150 til að hann geti fjaðrað í torfærum þarf að búa til mikið pláss. Þetta er gert með því að síkka fjöðrunarbita að framan, hækka afturfjöðrun og færa afturhásingu aftar. Ennfremur þarf að auka svigrúm í hjólskálum og færa til búnað undir vélarhlíf. Breiðir og háir brettakantar prýða bílinn og ný innri bretti verja hjólskálar og búnað fyrir innan. Spindlar og fjöðrun að framan eru styrkt til að takast á við aukna yfirferð og álag sem myndast vegna stærri jeppadekkja.