TRE loftdæla 12v í tösku

kr. 81.500

12v loftpressa frá TRE sem kemur í setti með burðartösku, raflagnasetti, loftslöngu og öllum nauðsynlegum aukahlutum fyrir sveigjanlega notkun. Settið kemur með 6 metra loftslöngu, rafmagnsklemmum fyrir rafgeymi, nákvæmum stafrænum dekkjamæli og endingargóðri burðartösku sem gerir flutning og geymslu einfaldan.

Á lager

Vörunúmer: tretram-pack-002 Flokkar: , Merkimiðar: , , Brand:

Lýsing

12v loftpressa frá TRE sem kemur í setti með burðartösku, raflagnasetti, loftslöngu og öllum nauðsynlegum aukahlutum fyrir sveigjanlega notkun. Settið kemur með 6 metra loftslöngu, rafmagnsklemmum fyrir rafgeymi, nákvæmum stafrænum dekkjamæli og endingargóðri burðartösku sem gerir flutning og geymslu einfaldan.

Innbyggður stafrænn dekkjamælir frá TRE4x4 tryggir nákvæma mælingu og fulla stjórn á loftþrýstingi, hvort sem þú ert að lækka fyrir sand, snjó eða fylla aftur fyrir vegakstur. Loftdælan skilar allt að 150 PSI þrýstingi og öflugu loftflæði sem dugar vel fyrir stærri dekk og krefjandi notkun. Þetta sett er ekki bara fyrir dekk. Það nýtist einnig fyrir allan þann búnað sem fylgir ævintýrinu, allt frá loftdýnum yfir í annan útivistarbúnað. Hvort sem þú ert að undirbúa ferð inn á hálendið, vinna úti í náttúrunni eða einfaldlega vilt vera viðbúinn, þá er þetta búnaður sem þú getur treyst á.

Tæknilegar upplýsingar

  • Spenna: DC 12V
  • Hámarks straumnotkun: 30A
  • Vinnuþrýstingur: 150 PSI
  • Mótor: Permanent Magnetic
  • Duty cycle: 33% (@22°C / 100 PSI)
  • Hámarks samfelldur keyrslutími: 60 mín (@22°C / 30 PSI)
  • Loftflæði: 65 L/mín (2.3 CFM @ 0 PSI, 13.8V)
  • Hámarks umhverfishiti: 70°C
  • Lágmarks umhverfishiti: -30°C
  • Sjálfvirk hitavörn: Já