Undirflokkar
Arctic Trucks

Arctic Trucks AT405 38X15,5R15

Vörunúmer: arctlar112
Til á lager — 157 stk.
134.990 kr.
Verð með VSK
Fresta 14 daga (0% vextir) · 30 daga · 60 daga
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Skv. verðskrá Pei. Nákvæmar tölur í reiknivél Pei. Reikna hjá Pei ›

Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.

Eitt fullkomnasta jeppadekk á markaðnum í dag. Íslenskir jeppamenn hafa í gegnum árin öðlast mikla reynslu af akstri við erfiðar aðstæður í snjó. AT405 jeppadekkið er þróað með hliðsjón af þeirri reynslu og til þess beitt
fullkomnustu tækni sem notuð er við gerð hjólbarða.

Gjaldfrjáls sending á pöntunum yfir 20.000 kr.- Gildir ekki á dekkjum, felgum og þyngri vörum
Birt með fyrirvara um villur og breytingar. Búnaður á myndum getur verið ólíkur staðalbúnaði vörunnar.

Eitt fullkomnasta jeppadekk á markaðnum í dag. Íslenskir jeppamenn hafa í gegnum árin öðlast mikla reynslu af akstri við erfiðar aðstæður í snjó. AT405 jeppadekkið er þróað með hliðsjón af þeirri reynslu og til þess beitt
fullkomnustu tækni sem notuð er við gerð hjólbarða. AT405 dekkið eru því afrakstur mikillar reynslu og þekkingu nokkura af okkar reynslumestu jeppasérfræðingum landsins.

Kostir AT405:

  • Hannað fyrir 12-14″ breiðar felgur: AT405 er hannað fyrir 12-14″ breiðar felgur, sem gerir það að verkum að lögun banans heldur upprunalegri bauglögun. Þetta stuðar að jafnari þyngdardreifingu og sliti.
  • Felgurvörn: tilgangurinn með felguvörninni á AT405 er að minnka líkur á að felgurnar skemmist auk þess sem minni líkur eru á að snjór troðist á milli felgu og dekks.
  • Stefnuvirkt dekk með opnar vatnsrásir: Eftir því sem dekk eru breiðari eru meiri líkur á að þau fljóti við akstur í krapa eða á blautum vegum. Til að minnka líkur á floti er AT405 með opnar vatnsrásir til beggja hliða sem dæla vatninu út auk þess að vera með dýpra mynstur og þar af leiðandi betri hreinsunareiginlega.
  • Flipaskorið: At405 er með vöfflumynstri svipuðu og tíðkast hefur í fólksbíladekkjum. Tennurnar á vöffluflipunum auka grip dekkjana í snjó.
  • Jafngróft: Mynstið á AT405 er jafngróft yfir allan banann til að minnka líkur á að dekkið „svelli undir sér“ við akstur í snjó.
  • 14° sleppihorn: 14° sleppihorn er á öllum kubbum mynstursins á AT405 til að fyrirbyggja að snjór safnist fyrir.
  • Til að draga úr hvin: Kubbarnir í mynstrinu eru með mismunandi millibili allan hringinn auk þess að vera misbreiðir. Allir hlutar fjölklemmumótsins sem mynda mynstrið eru auk þess mismunandi að gerð en það minnkar líkur á eigin tíðni.
  • Millimjúkt gúmmí: AT405 er búið til úr millimjúku gúmmíi sem heldur vel upprunalegum eiginleikum þrátt fyrir miklar hitasveiflur.

 

Stærð

38×15,5R15

Felgustærð

15"