Undirflokkar
Fréttir

Toyota Land Cruiser 250 AT44

17. JÚNÍ 2026
Nýlega afhentum við þennan hrikalega flotta og vel útbúna Land Cruiser 250 með AT44 breytingu. Bílinn er ekki bara flottur heldur einnig rosalega öflugur og vel útbúinn. Auk grunnbreytingar fékk bílinn meðal annars ARB loftlæsingu að framan, sérsmíðaðan eldsneytistank, Arctic Trucks hlífðarpönnur undir bíl, Arctic Trucks þriggja hluta felgu, ARB Base Rack toppgrind, ARB Nacho ljós, BP-51 dempara, sérsmíðaðan rörastuðara að framan, úrhleypibúnað o.mfl.
Helstu upplýsingar um breytingu:
8cm klafasíkkun að framan + 4cm upphækkun á fjöðrun
Upphækkun að aftan
BP51 demparar framan og aftan
5.29 hlutföll
44″ brettakantar
17×15 þriggja hluta Arctic Trucks álfelgur
44″ Arctic Trucks dekk
Sérsmíðuð gangbretti
Stærri aurhlífar
ARB loftlæsingu að framan
Sérsmíðuð stuðaragrind
Hlífðarpönnur undir bíl
ARB tvöföld kolalaus loftdæla
ARB loftlæsingardæla
Handvirkur úrhleypibúnaður
ARB Nacho ljós
Slökkvitæki og sjúkrapúði
Arctic Trucks átaksmælir