Arctic Trucks varð til inni í Toyotaumboðinu upp úr 1990 og starfaði þar í 15 ár, fyrst sem Toyota-aukahlutir og seinna sem Arctic Trucks. Fyrirtækið varð sjálfstætt 2005 og hefur haft starfsemi sína á Kletthálsi 3 síðan.
Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á hönnun breytinganna sjálfra og þeirra íhluta sem notaðir eru. Allar stærri breytingar hafa verið hannaðar frá upphafi með það í huga að staðla hvert handtak og hvert smáatriði til að tryggja rétt vinnulag og frágang.
Starfsmenn Arctic Trucks hafa í gegnum tíðina hannað ýmsa hluti sem hafa öðlast stóran sess í heimi jeppamanna á Íslandi. Þar má nefna AT405 38″ dekkið sem var hannað í kringum 1998 og er enn í fullu fjöri, og fjöðrunina sem Freyr Jónsson heitinn hannaði upprunalega undir Toyota Hilux.
Við höfum alltaf lagt áherslu á vönduð vinnubrögð sem við teljum vera sérstöðu Arctic Trucks. Það er ekki óalgengt að hingað komi bílar sem breytt var fyrir 15–20 árum þar sem breytingarnar sjálfar eru stráheilar og óryðgaðar þó annað í bílnum sé farið að láta á sjá.
Við höfum þróað viðurkennda breytingapakka með framleiðendum á borð við Toyota, Isuzu, Nissan, Land Rover og Ford — og þannig breytt götujeppum í jöklajeppa sem hafa líklega heimsótt hvern einasta veiðistað á Íslandi.
Arctic Trucks á Íslandi er sjálfstætt fyrirtæki en starfar undir merkjum Arctic Trucks International, með starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Póllandi, Bretlandi, Bandaríkjunum og Rússlandi. Þá hefur Arctic Trucks Polar getið sér gott orð á Suðurskautslandinu.