Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Arctic Trucks Ísland ehf. leggur áherslu á að vernda persónuupplýsingar viðskiptavina í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerð ESB (GDPR).
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Við söfnum þeim upplýsingum sem þú gefur okkur sjálf/ur, t.d. nafni, netfangi, símanúmeri, heimilisfangi og pöntunarupplýsingum, auk tæknilegra upplýsinga um heimsóknir á vefinn (sjá Vefkökur).
Til hvers notum við upplýsingarnar?
Til að afgreiða pantanir, veita þjónustu, svara fyrirspurnum, bæta vefinn og uppfylla lagaskyldur. Við seljum aldrei persónuupplýsingar til þriðja aðila.
Geymslutími
Upplýsingar eru geymdar eins lengi og nauðsynlegt er vegna viðskipta og lagaskyldna (t.d. bókhaldslög).
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að, leiðrétta eða láta eyða persónuupplýsingum þínum, og að andmæla vinnslu. Sendu beiðni á info@arctictrucks.is.
Vinnsluaðilar
Við notum trausta þjónustuaðila fyrir greiðslumiðlun, sendingar og vefumsjón sem vinna gögn fyrir okkar hönd samkvæmt vinnslusamningum.