
Verkstæði
Fjölhæft verkstæði fyrir breytingar, viðhald og bilanagreiningu á öllum gerðum bíla.
Auk fjölbreyttra breytinga á öllum helstu gerðum fjórhjóladrifinna bíla sinnum við ásetningu aukahluta, ljóskastara, loftdæla, úrhleypibúnaðs, aukamiðstöðva og annars sem ferðalanga í óbyggðum gæti vanhagað um. Við þjónustum allar stærðir og gerðir bíla en sérhæfum okkur í fjórhjóladrifnum og breyttum bílum. Komdu til okkar ef þig vantar aðstoð með aukahlutina eða greiningu á þessu skrýtna hljóði sem heyrist stundum og engin leið er að átta sig á hvaðan kemur. Við höfum mikla reynslu af viðhaldi fjórhjóladrifinna bíla og gjörþekkjum bíla frá öllum helstu framleiðendum — nýttu þér reynsluna og láttu okkur sinna fyrirbyggjandi aðgerðum og nauðsynlegu viðhaldi.
- Jeppabreytingar og ásetning aukahluta
- Almennt viðhald og viðgerðir
- Bilanagreining
- Fyrirbyggjandi þjónusta



