Toyota Hilux AT40

Við vorum að klára þennan flotta Toyota Hilux AT40. Bílinn er stórglæsilegur og samsvarar sér vel á 40″ Mickey Thompson dekkjunum. Auk grunnbreytingar fékk þessi bíll kastaragrind að framan, ARB framlás, Viair loftdælu, Úrhleypibúnað frá Pump, dráttarbeisli að aftan, talstöð, Webasto olíumiðstöð og palllok frá EGR.
Við óskum eigandanum innilega til hamingju með bílinn