Undirflokkar
TRE4x4

TRE pallgrind hálf hæð m. rennipalli universal

Vörunúmer: tretrmbr-d-h
Til á lager — 1 stk.
Original price was: 309.900 kr..Current price is: 278.910 kr.. −10%
Verð með VSK
Fresta 14 daga (0% vextir) · 30 daga · 60 daga
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Skv. verðskrá Pei. Nákvæmar tölur í reiknivél Pei. Reikna hjá Pei ›

Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.

TRE pallgrind í hálfri hæð með opnanlegum hliðum og slide skúffu. Pallgrindin er hönnuð fyrir þá sem vilja hámarka nýtingu og burðargetu pallbílsins, hvort sem um er að ræða ferðalög á hálendinu, vinnu eða overland-uppsetningar. Hún breytir pallinum í fjölhæfa burðarlausn þar sem auðvelt er að festa aukabúnað og skipuleggja farangur á skilvirkan hátt.

Gjaldfrjáls sending á pöntunum yfir 20.000 kr.- Gildir ekki á dekkjum, felgum og þyngri vörum
Birt með fyrirvara um villur og breytingar. Búnaður á myndum getur verið ólíkur staðalbúnaði vörunnar.

TRE pallgrind í hálfri hæð með opnanlegum hliðum og rennipalli. Pallgrindin er hönnuð fyrir þá sem vilja hámarka nýtingu og burðargetu pallbílsins, hvort sem um er að ræða ferðalög á hálendinu, vinnu eða overland-uppsetningar. Hún breytir pallinum í fjölhæfa burðarlausn þar sem auðvelt er að festa aukabúnað og skipuleggja farangur á skilvirkan hátt.

Grindin er byggð upp í módúlakerfi sem gerir þér kleift að sérsníða uppsetninguna að þínum þörfum. Þú getur bætt við eða breytt lausnum eftir notkun hvort sem það er tjald á þaki, geymslukassar, recovery búnaður eða annar ferðabúnaður. Innbyggður rennipallur auðveldar aðgengi að búnaði í pallinum og gerir hleðslu og losun einfaldari, á meðan opnanlegar hliðar með gasdempara tryggja fljótlegt og þægilegt aðgengi að farangri úr öllum áttum.

Pallgrindin er framleidd úr léttu en sterku álblendi með anodized yfirborðsmeðferð sem veitir góða vörn gegn tæringu og íslenskum aðstæðum. Hún býður upp á mikla burðargetu og er hönnuð til að standast bæði daglega notkun og krefjandi utanvegaakstur. Með fjölbreyttum festingarmöguleikum er hægt að setja á grindina búnað eins og þaktjöld, skyggni, ljós, hjól, kajaka eða eldsneytis- og vatnstanka, sem gerir hana að fullkominni lausn fyrir bæði ævintýri og vinnu.

Tæknilegar upplýsingar

  • Burðargeta (jafndreift):
    • 200 kg í hörðum utanvegaakstri
    • 400 kg á vegi
    • allt að 800 kg kyrrstætt
  • Burðargeta rennipalls: 150 kg
  • Breidd: stillanleg ca. 1430–1800 mm
  • Lengd: 1390 mm
  • Hæð: 394 mm
  • Efni: Álblendi (anodized)