Yamaha Kodiak 450 IRS – 2026
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.
Yamaha Kodiak 450 er “rétta stærðin” fyrir íslenskt útivistarlíf og verk: lipurt og létt í meðförum á þröngum slóðum, en samt nógu sterkt til að standa vaktina þegar aðstæður verða blautar, grýttar eða ójafnar. Hjólið er með 421cc vökvakældri, 1-sílenders vél með EFI innspýtingu og Ultramatic® CVT skiptingu, sem skilar jöfnu og mjúku togi — hentugt bæði í rólegum akstri og þegar þarf að “taka í”.
Í daglegri notkun skiptir burðargetan mestu: Kodiak 450 getur borið allt að 120 kg á grindum og togað allt að 600 kg, sem nýtist vel með kerru, eldivið, verkfæri eða búnað í sveit og sumarhúsi. Með On-Command® valkvæðu 2WD/4WD færðu aukið grip þegar þú ferð úr malbiki yfir í möl, aur eða snjó — án þess að flækja málin.
- 5 ára ábyrgð
- 10 ára ábyrgð á drifreim
Þú ert á biðlista. Við látum þig vita um leið og varan er aftur á lager.
- Vél – 421cc, 1-Sílender – Fjórgengis
- Skipting og gírar – Ultramatic® Reimdrifin – L/H/R
- Stýri – Kraftastýri
- Drif – 2WD, 4WD
- Blautvigt – 301kg
- L x B x H – 2.035 x 1.180 x 1.160
- Hæð frá jörðu – 245mm
- Bensíntankur – 14L
- Sæti – 1-Manna
- Fjöðrun framan – KYB, 171mm
- Fjöðrun aftan – KYB, 189mm
- Dekk framan – 25x8R12
- Dekk aftan – 25x10R12
- Skráning – Dráttarvélaskráð, hvít númer
Þessi vara er skráð til að passa á eftirfarandi bíla:


