Yamaha MT-09 SP – 2024
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.
Yamaha MT-09 SP er “Hyper Naked” hjólið fyrir þá sem vilja MT-09 upplifunina í enn skarpari, sportlegri og betur stillanlegum pakka — mjög hentugt á íslenskum vegum þar sem þú finnur bæði hraðar sveiflur í undirlagi og vind sem krefst stöðugleika og góðrar tilfinningar í framenda.
SP útgáfan sker sig sérstaklega úr í undirvagni og hemlum: hún kemur með KYB USD framgaffli með DLC húðun sem er fullstillanlegur (forspenna, rebound og compression) og Öhlins afturdempara sem er líka stillanlegur og með remote preload adjuster, þannig að þú getur auðveldlega hert eða mýkt stillingar þegar þú ferð t.d. úr solo-akstri yfir í farþega og farangur.
Að auki við þetta færðu líka uppfærðar bremsur — Brembo Stylema bremsukerfi (betri tilfinning í handfangi og beinna svar) og almennt “meira nákvæmt” og fágað hjól en grunnútgáfan þegar keyrt er ákveðið.
- 5 ára ábyrgð
Þú ert á biðlista. Við látum þig vita um leið og varan er aftur á lager.
- Vél – 890cc, 3-sílendra – Fjórgengis
- Gírkassi – 6-Gírar Beinskipt
- L x B x H – 2.090 x 820 x 1.145
- Sætishæð – 825 mm
- Blautvigt – 194 kg
- Bensíntankur – 14L
- Framdempari slaglengd – KYB, 130 mm
- Afturdempari slaglengd – Öhlins, 117 mm
- Dekk framan – 120/70R17
- Dekk aftan – 180/55R17
- Mótorhjólapróf – A


