Yamaha Ténéré 700 Rally – 2026
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.
Yamaha Ténéré 700 Rally er útgáfan fyrir þá sem vilja fara lengra inn á slóðina – og hafa meiri “rally” tilfinningu í pakkanum. Hún byggir á sama CP2 689cc grunni, með YCC-T rafstýrðri inngjöf, akstursstillingum og möguleika á að slökkva á ABS og spólvörn þegar þú vilt fulla stjórn á möl, vikri eða grófu undirlagi.
Rally munurinn sést fyrst og fremst í undirvagninum og smáatriðunum: fullstillanlegur KYB framgaffall með langri fjöðrunarvegalengd, fullstillanleg afturdempun og 255 mm veghæð – sem er akkúrat það sem nýtist á íslenskum F-vegum, holóttum heiðum og grýttum köflum. Hjólið er líka með rally-sæti (910 mm sæthæð), títan fótstig og 4 mm vélarhlíf (skid plate) fyrir meiri vörn þegar farið er út fyrir “þægindarhringinn”.
Svo er það líka í glæsilegu “Dakar” í útliti: 80’s Paris-Dakar innblásið litasett, hátt frambretti og 6,3" TFT skjár með Raid þema, símatengingu tengingu og leiðsögn – þannig að þú færð bæði karakter og tækni, án þess að hjólið missi einfaldleikann sem Ténéré er þekkt fyrir.
- 5 ára ábyrgð
Þú ert á biðlista. Við látum þig vita um leið og varan er aftur á lager.
- Vél – 689cc, 2-sílendra – Fjórgengis
- Gírkassi – 6-Gírar Beinskipt
- L x B x H – 2.370 x 935 x 1.490
- Sætishæð – 910 mm
- Blautvigt – 210 kg
- Bensíntankur – 16L
- Framdempari slaglengd – 230 mm
- Afturdempari slaglengd – 220 mm
- Dekk framan – 90/90R21
- Dekk aftan – 150/70R18
- Mótorhjólapróf – A eða A2 í 35kw útfærslu


