Yamaha Tracer 9 GT – 2025
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.
Yamaha TRACER 9 GT er sport-touring hjól sem passar einstaklega vel í íslenskar aðstæður: langt á milli staða, mikill vindur og vegir sem geta breyst hratt úr sléttu malbiki í ójafnari kafla. Knúið af 890cc CP3 3-sílendra vélinni (119 hö / 93 Nm, Euro 5+) og býður 3 akstursstillingar + 2 sérstillanlegar, þannig að þú getur fínstillt aflið eftir veðri og vegi.
Það sem gerir GT-útgáfuna sérstaklega “ferðaklára” er tæknin og þægindin: hálfvirk (semi-active) fjöðrun með mismunandi dempun, 7” TFT skjár með snjallsímatengingu, og LED Matrix framljósabúnaður sem nýtir myndavél og IMU til að stilla birtu og ljósdreifingu og fylgja halla í beygju — mjög hentugt á dimmum köflum og í breytilegu skyggni.
Að lokum er hjólið vel undir ferðalag: það kemur með hliðartöskum (2×30 L) frá verksmiðju og það er hægt að bæta við toppkassa ef þú vilt taka meira með — hvort sem það er helgarbúnaður eða alvöru hringferð.
- 5 ára ábyrgð
Þú ert á biðlista. Við látum þig vita um leið og varan er aftur á lager.
- Vél – 890cc, 3-sílendra – Fjórgengis
- Gírkassi – 6-Gírar Beinskipt
- L x B x H – 2.175 x 900 x 1.440 – 1.530
- Sætishæð – 845 – 860 mm
- Blautvigt – 231 kg
- Bensíntankur – 19L
- Framdempari slaglengd – 130 mm
- Afturdempari slaglengd – 131 mm
- Dekk framan – 120/70R17
- Dekk aftan – 180/55R17
- Mótorhjólapróf – A



