Yamaha Wolverine® RMAX™2 1000 XT-R – 2026
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.
Yamaha Wolverine RMAX2 1000 XT-R er sportlegur 2ja sæta side-by-side sem er sérlega skemmtilegur á slóðum, en samt byggður til að takast á við krefjandi undirlag – eins og lausamöl, grjót og bleytu sem þú hittir reglulega á Íslandi. Grunnurinn er 999cc, 2-sílendra með Ultramatic skiptingu, ásamt On-Command drifkerfi (Turf Mode, 2WD, 4WD og Diff-lock) sem gefur þér rétta gripið þegar aðstæður breytast á einni og sömu ferðinni.
XT-R útfærslan bætir svo við “rugged” notagildi og útliti: hún kemur á 30" Maxxis Carnivore dekkjum og með uppfærðum framstuðara sem ber VRX 4500 lbs dráttarspil – mjög hentugt þegar snjór, krapi eða aur er á vegi og þarf að losa eða draga aðra upp. Innanrýmið er líka hugsað fyrir raunverulega notkun, með ljósum í fótarými og miðju, miðjuspegli, USB hleðslu og upplýstum rofum, svo það er þægilegt að vera lengi á ferð – líka þegar skyggnið og birtan eru “íslensk”.
- 5 ára ábyrgð
- 10 ára ábyrgð á drifreim
Þú ert á biðlista. Við látum þig vita um leið og varan er aftur á lager.
- Vél – 999cc, 2-sílendra – Fjórgengis
- Skipting og gírar – Ultramatic® Reimdrifin – L/H/R
- Stýri – Rafmagnsstýri, stillanlegt
- Drif – 2WD, 4WD, Diff-lock, Turf-Mode
- Blautvigt – 837 kg
- L x B x H – 3.030 x 1.680 x 1.975
- Hæð frá jörðu – 350 mm
- Bensíntankur – 35L
- Sæti – 2-Manna
- Fjöðrun framan – FOX QS3 Rafstillanlegur – 361 mm
- Fjöðrun aftan – FOX QS3 Rafstillanlegur – 429 mm
- Dekk framan – 30x10R14
- Dekk aftan – 30x10R14
- Skráning – Dráttarvélaskráð – Hvít númer
Þessi vara er skráð til að passa á eftirfarandi bíla:


