Undirflokkar
Yamaha

Yamaha Wolverine® RMAX™4 1000 LE – 2026

Ekki á lager
Original price was: 5.890.000 kr..Current price is: 5.301.000 kr.. −10%
Verð með VSK
Fresta 14 daga (0% vextir) · 30 daga · 60 daga
Dreifa (raðgreiðslur) frá 30.000 kr — 18,10% ársvextir
Skv. verðskrá Pei. Nákvæmar tölur í reiknivél Pei. Reikna hjá Pei ›

Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati.

Yamaha Wolverine RMAX 4 1000 LE er „side-by-side“ sem er byggður fyrir langa daga á slóðum og torfærum þar sem þægindi, stjórn og afköst þurfa að haldast í hendur – mjög viðeigandi fyrir íslenskar aðstæður þar sem þú ferð oft úr möl í grjót, bleytu og bratta kafla á sama túr. Hann er með 999cc, 2-sílendra vél og Drive-Mode með stillingunum Sport / Trail / Crawl, þannig að þú getur valið karakterinn eftir því hvort þú vilt sprækari akstur, jafna torfærukeyrslu eða hægari og nákvæmari stjórn þar sem gripið er lítið.

Þægindin eru líka stór partur af pakkanum: 4 sæta og lengra hjólhaf hjálpar bæði með akstursþægindi og stöðugleika í ójöfnum aðstæðum. Fjöðrunin er FOX® 2.0 iQS með rafstillanlegum dempurum beint úr sætinu svo þú aðlagar fjöðrunina á ferðinni þegar þú ferð úr harðri möl í grjót, bleytu, aur eða snjó, og EPS stýrið er stillanlegt fyrir nákvæmari stjórn. Fyrir búnað og ferðir er þetta líka praktískt tæki: pallurinn er hannaður fyrir burð og festingar og getur flutt allt að 272 kg, og kemur með WARN® VRX 45 dráttarspili og uppfærðum framstuðara – gott þegar þarf að draga sig (eða aðra) upp úr krapa, aur eða snjósköflum.

  • 5 ára ábyrgð
  • 10 ára ábyrgð á drifreim

🔗 PDF Bæklingur
🔗 Aukahlutir

Þú ert á biðlista. Við látum þig vita um leið og varan er aftur á lager.

Gjaldfrjáls sending á pöntunum yfir 20.000 kr.- Gildir ekki á dekkjum, felgum og þyngri vörum
Birt með fyrirvara um villur og breytingar. Búnaður á myndum getur verið ólíkur staðalbúnaði vörunnar.
  • Vél – 999cc, 2-sílendra – Fjórgengis
  • Skipting og gírar – Ultramatic® Reimdrifin – L/H/R
  • Stýri – Rafmagnsstýri, stillanlegt
  • Drif – 2WD, 4WD, Diff-lock, Turf-Mode
  • Blautvigt – 1.080 kg
  • L x B x H – 4.055 x 1.677 x 2.110
  • Hæð frá jörðu – 360 mm
  • Bensíntankur – 35L
  • Sæti – 4-Manna
  • Fjöðrun framan – FOX 2.0 iQS Rafstillanlegur – 361 mm
  • Fjöðrun aftan – FOX 2.0 iQS Rafstillanlegur – 429 mm
  • Dekk framan – 30x10R14
  • Dekk aftan – 30x10R14
  • Skráning – Dráttarvélaskráð – Hvít númer

Þessi vara er skráð til að passa á eftirfarandi bíla:

Yamaha Wolverine