Yamaha Grizzly 700 EPS – 2026
kr. 2.840.000
Yamaha Grizzly 700 EPS er fjórhjól sem er hannað fyrir alvöru íslenskar aðstæður, til að mynda ójafna slóða, lausamöl, bleytu og drullu. 686cc vélin ásamt Ultramatic® skiptingunni skilar mjúkum en kraftmiklum viðbrögðum, og all-wheel vélarhemlun gefur betri stjórn þegar farið er niður brekkur. Með On-Command® 2WD/4WD/Diff-lock skiptirðu á milli drifa eftir því hvort þú ert á harðri slóð, í leðju eða þar sem gripið þarf að vera í hámarki. EPS rafmagnsstýrið, sjálfstæð fjöðrun með KYB dempurum og diskabremsur út í hjól gera aksturinn bæði þægilegri og öruggari – jafnvel þegar veðrið er “íslenskt”. Fyrir verk og ævintýri kemur Grizzly líka vel búið: WARN VRX 25 dráttarspil, 600 kg dráttargetu, burðargetu á grindum (50 kg að framan / 90 kg að aftan) og 18L tank.
- 5 ára ábyrgð
- 10 ára ábyrgð á drifreim
🔗 PDF Bæklingur
🔗 Aukahlutir
Ekki til á lager