HÖFUM GAMAN AF ÞESSU!

SUZUKI JIMNY
AT31 OG AT33

Suzuki Jimny hefur slegið í gegn um allan heim. Útlit hans er innblásið af eldri kynslóðum jeppa, en með nútímalegu yfirbragði. Margur er knár, þótt hann sé smár og Jimny er þar engin undantekning, hátt og lágt drif, læstur millikassi og góð drifgeta gera það af verkum að Jimny gefur stærri jeppum lítið eftir.

Klippt úr hjólaskálum framan og aftan
Breiðari álfelgur og stærri dekk
Nýir brettakantar
Spilbitar, grillgrindur, snorkel, aukaljós og fleira.
Hraðamæli breytt
Slaglengri fjöðrun

SETTU SAMAN BREYTINGAPAKKA

Arctic Trucks er umboðsaðili fyrir fjölda leiðandi framleiðenda á hers kyns aukabúnaði og íhlutum og við getum örugglega útvegað þér næstum allt sem þú þarfnast.

 

SUZUKI JIMNY AT

Frá: kr. 0

Jimny fæst með AT31 og AT33 breytingum, ásamt aukabúnaði sem Arctic Trucks hefur þróað – s.s. spilbita að framan og prófílbeisli að aftan.

SUZUKI JIMNY AT31

kr. 990.000

Upphækkun að framan og aftan, ásamt uppfærðri slaglengri fjöðrun. Nýjar breiðari álfelgurog stærri dekkjum sem henta vel fyrir bíl í þessari stærð og þyngd. Klippt er úr hjólskálum að framan og aftan til að gera pláss fyrir stærri dekk og leyfa bílnum að fjaðra sem mest og halda beygjuradíus upprunalegum. Arctic Trucks aurhlífar að framan og aftan gefa bílnum jeppalegt útlit og hlífa honum fyrir grjótkasti. Þar sem ummálsaukning dekkjanna er veruleg er einnig notaður hraðamælabreytir til að leiðrétta fyrir dekkjastærðinni.

Helstu breytingar

  • Hækkar um 47mm undir lægsta punkt
  • 40 mm lengri demparar og gormar framan
  • 40 mm lengri demparar og gormar aftan
  • Stífusíkkun framan
  • Breyting á hjólskálum að framan og aftan
  • Ný innri brettri
  • Stærri aurhlífar
  • 31x10,5R15 jeppadekk
  • 15x7,5 álfelgur
  • Hjólastilling
  • Hraðamælabreytir
  • Sérskoðun og vigtun
  • Slökkvitæki og sjúkrapúði
  • Arctic Trucks merki

SUZUKI JIMNY AT33

kr. 2.390.000

Breytingin felst í hækkun að framan og aftan, ásamt uppfærðri slaglengri fjöðrun. Nýjar breiðari felgur og  33" dekk gera bíl í þessari stærð mjög öflugan. Klippt er úr hjólskálum að framan og aftan til að gera pláss fyrir stærri dekk og leyfa bílnum að fjaðra sem mest. Beygjuradíus helst upprunalegur eftir breytingu. Nýjir brettakanntar framan og aftan gefa bílnum mjög jeppalegt og töff útlit. Ný innribretti eru sniðin í hjólskálarnar og  Arctic Trucks aurhlífar að framan og aftan til þess að hlífa honum fyrir grjótkasti. Þar sem ummálsaukning dekkjanna er veruleg er einnig notaður hraðamælabreytir til að leiðrétta fyrir dekkjastærðinni. Hér er á ferðinni ofurjeppi sem leynir á sér.

Helstu breytingar

  • Hækkar um 73mm undir lægsta punkt
  • 40 mm lengri demparar og gormar framan
  • 40 mm lengri demparar og gormar aftan
  • Stífusíkkun framan
  • Úrklippa í hjólskálum að framan og aftan
  • Samlitir brettakantar
  • Ný innri brettri
  • Stærri aurhlífar
  • 33x12,5R15 jeppadekk
  • 15x10 álfelgur
  • Hjólastilling
  • Hraðamælabreytir
  • Sérskoðun og vigtun
  • Slökkvitæki og sjúkrapúði
  • Arctic Trucks merki

Húddhlíf Suzuki Jimny 2019-

kr. 24.977

Gluggavindhlífar Suzuki Jimny 2019- (par framan)

kr. 24.978

Gluggahlífar frá EGR á Suzuki Jimny 2019-

 

Snorkel Suzuki Jimny 2019-

kr. 127.990

Grillgrind Suzuki Jimny 2018- svört

kr. 99.900

Ekki til á lager

Festingar fyrir kastara 75mm Svartar - 2 stk

kr. 19.220

Festingar fyrir kastara sem festast utan um röragrindur, 75mm.

Strands 7" Siberia Night Ranger Kastari Flood

kr. 42.900

7" kastari frá Strands sem gefur frá sér ótrúlegt ljósmagn. Flood geisli og 9600 lúmens gerir það að verkum að það lýsist allt upp í allt að 800m fjarlægð. Einn af flottustu kösturum á markaðnum í dag. Bæði hvítt og appelsínugult stöðuljós.

Strands 7" Siberia Night Ranger Kastari Spot

kr. 42.900

7" kastari frá Strands sem gefur frá sér ótrúlegt ljósmagn. Spot geisli og 6720 lúmens gerir það að verkum að þú lýsir upp í allt að 1250 metra fjarlægð. Einn af flottustu kösturum á markaðnum í dag. Bæði hvítt og appelsínugult stöðuljós.

Loftlæsing framan Suzuki Jimny 2003-

kr. 178.000

Ekki til á lager

Loftlæsing aftan Suzuki Jimny 1998-

kr. 178.000

Ekki til á lager

Flokkur:

1. Fylltu í reitina

2. Sækja PDF skjal eða fá í tölvupósti