Lýsing
Sterk og létt botnplata fyrir Hi-Lift tjakk, hönnuð til að veita betri stöðugleika við lyftingu á mjúku eða ójöfnu undirlagi. Botnplatan er framleidd úr þykku og léttu plastefni sem þolir mikla notkun og hentar einstaklega vel við aðstæður eins og sand, möl, snjó og drullu þar sem hefðbundinn tjakkur getur annars sokkið niður.
Platan er 16” x 16” að stærð og eykur snertiflöt tjakkans verulega, sem hjálpar til við að dreifa þyngdinni og tryggja öruggari lyftingu. Botnplatan festist ekki beint við tjakkinn, heldur er hún með sérhannaðri innfelldri skoru fyrir botn tjakkans, sem heldur honum stöðugum á meðan lyftingu stendur.
Tilvalin viðbót fyrir þá sem aka utan alfaraleiða og vilja vera vel undirbúnir fyrir erfiðar aðstæður.
