Lýsing
Vönduð og sterk grillgrind frá ítalska framleiðandanum Misutonida, sérhönnuð fyrir Mercedes-Benz Sprinter frá árgerð 2018 og nýrri. Þessi grillgrind gefur bílnum kraftmeira útlit ásamt aukinni vörn að framan, fullkomið fyrir atvinnubíla, expedition uppsetningar eða jeppaútgáfur sem þurfa bæði útlit og endingu. Grillgrindin er framleidd úr 100% ryðfríu stáli (Inox) og kemur hér í svartri útfærslu sem passar einstaklega vel við nútímalegt útlit Sprinter. Með 63 mm rörastærð fær bíllinn sterkara og grófara yfirbragð án þess að tapa OEM útliti.
Varan kemur með öllum festingum og því sem þarf til uppsetningar ásamt leiðbeiningum fyrir einfalda ísetningu.
Athugið að þessi útgáfa passar ekki á framhjóladrifna (FWD) Mercedes-Benz Sprinter.
