Lýsing
Upplifðu öflugri og öruggari akstur í myrkri með sérhannaðri lýsingarlausn frá Strands, sérstaklega þróuð fyrir Toyota Hilux 2021–2024. Lausnin eykur bæði drægni og breidd hágeislans verulega og gefur þér mun betri yfirsýn við akstur á dimmum vegum, í dreifbýli og við krefjandi aðstæður. Með allt að 435 metra drægni og ljósgeisla sem er allt að fjórfalt breiðari en hefðbundin hágeislalýsing bílsins, eykst öryggi til muna. Betra skyggni skiptir miklu máli þegar kemur að viðbragðstíma, hvort sem um er að ræða dýr á vegi, hindranir eða aðstæður þar sem sekúndubrot geta skipt sköpum.
Lausnin er sérsniðin að Hilux og fellur einstaklega vel að útliti bílsins. Festingarnar eru hannaðar sérstaklega fyrir viðkomandi árgerð og tryggja snyrtilega og hraða uppsetningu án þess að þurfa flóknar breytingar. Í flestum tilfellum þarf ekki að taka grill bílsins í sundur, sem einfaldar uppsetningu verulega. Í pakkanum fylgir 2x 8″ kastarar , sérsniðnar festingar og fullbúið plug-and-play rafmagnskerfi sem tryggir hraða og örugga uppsetningu. Fyrir bíla sem nota CAN-BUS rafkerfi getur þurft sérstakan can kubb sem hægt er að kaupa hjá okkur, og mikilvægt er að kanna það áður en ljósin eru tengd.
Strands Lighting Division hefur verið leiðandi í aukalýsingu frá árinu 2004 og stendur að baki vörunni með 3 ára ábyrgð, framúrskarandi gæðum og áreiðanlegri þjónustu.
| Eiginleiki | Upplýsingar |
|---|---|
| Eining | Pakki |
| Spenna (DC) | 10–32V DC |
| Aflnotkun | 55W |
| Raunlúmen | 4300 lm |
| 1 lux við | 544 m |
| Litahitastig | 5700K |
| Ljósdreifing | Extended Beam / langdræg geislun |
| Tenging | DT-4PIN |
| Litur á húsi | Svart |
| Litur á linsu | Glær |
| Efni í festingu | Ryðfrítt stál |
| Efni í húsi / chassis | Ál |
| Efni í linsu | Pólýkarbónat |
| Dýpt | 71,6 mm |
| Hæð | 76 mm |
| Hæð með festingu | 89 mm |
| Þyngd | 4,536 kg |
| IP-vottun | IP67/69K |
| Vinnsluhitastig | -30 til +65°C |
| ECE vottun | R148 / R149 |


