Lýsing
Hættu að berjast við flæktar og óhentugar loftslöngur sem eru annað hvort of langar eða of stuttar fyrir bílinn þinn. APEX Air-Eco System er afkastamikið og sérsniðið loftkerfi sem gerir þér kleift að fylla eða tæma öll fjögur dekkin samtímis hratt, nákvæmlega og án fyrirhafnar. Kerfið tengir öll fjögur dekkin við loftdælu og jafnar sjálfkrafa loftþrýsting á milli þeirra á meðan fyllt er eða tæmt. Útkoman er jafnvægisstilltur bíll og mun hraðari stopp á ferðalagi, hvort sem er á hálendinu eða í torfærum.
Air-Eco kerfið er hannað með sveigjanleika í huga. Í stað hefðbundinna “one-size-fits-all” lausna færðu með kerfinu 12,8 metra loftslöngu sem þú klippir sjálfur eftir hjólhafi bílsins. Þannig færðu fullkomna lengd án þess að slöngur dragist eftir jörðinni eða flækist í dekkjum. Kerfið notar 3/8″ nylon styrkta loftslöngu sem er bæði slitsterk og mótstöðug gegn beygjum og flækjum. Hún leggst flöt og þétt í geymslu en skilar um leið meiri loftflæði en hefðbundnar slöngur, sem styttir fyllingartíma verulega.
Í settinu er einnig APEX loftþrýstingsmælir og fyllir með snjallri “slide valve” stjórnun þar sem þú ýtir niður til að fylla og sleppir til að mæla þrýsting. Þetta gerir notkunina einfaldari og minnkar álag á hendur við notkun.
Helstu eiginleikar
- fyllir og tæmir öll 4 dekkin samtímis
- Styttanleg loftslanga sem passar nákvæmlega við þinn bíl
- 3/8″ háflæðis loftslanga fyrir hraðari fyllingu
- slitsterk og flækjulaus hönnun
- tengist öllum loftpressum með 1/4″ NPT tengi
Í pakkanum fylgir allt sem þarf til uppsetningar:
- 4 push-on tengi fyrir dekk
- 3 Y-tengi
- 12,8 metra 3/8″ loftslanga
- APEX loftfyllir (90 PSI)





