Rafmagns kælibox með frysti 96L 12/24v og 100/240v

kr. 221.900

Ice Rhino kæli- og frystiboxið er hannað fyrir þá sem eru á ferðinni og gera kröfur um áreiðanlega kælingu, hvort sem leiðin liggur upp á hálendi, í útilegu, vinnuferðir eða lengri jeppaferðir. Með stafrænu stjórnborði er auðvelt að stilla hitastigið frá -18°C upp í 10°C, sem gerir boxið fullkomið fyrir allt frá frosnu kjöti og drykkjum yfir í ferska ávexti og grænmeti.

Aðeins 1 eftir á lager

Vörunúmer: tretrff-nw95l010 Flokkar: , Brand:

Lýsing

Ice Rhino kæli- og frystiboxið er hannað fyrir þá sem eru á ferðinni og gera kröfur um áreiðanlega kælingu, hvort sem leiðin liggur upp á hálendi, í útilegu, vinnuferðir eða lengri jeppaferðir. Með stafrænu stjórnborði er auðvelt að stilla hitastigið frá -18°C upp í 10°C, sem gerir boxið fullkomið fyrir allt frá frosnu kjöti og drykkjum yfir í ferska ávexti og grænmeti.

Boxið er búið tvískiptri kæli-/frystisvæðastýringu (dual zone) sem gerir þér kleift að stjórna kælingu og frystingu eftir þínum þörfum. Innbyggð hleðsluport fyrir 1,5A farsímatæki gerir Ice Rhino ekki aðeins að kæliboxi heldur einnig þægilegum aflgjafa fyrir tækin þín á ferðinni. Til að tryggja að þú verðir aldrei strandaglópur er boxið með rafhlöðuvernd fyrir ökutæki, þar sem lágspennuvörn kemur í veg fyrir að það tæmi rafgeyminn.

Ice Rhino gengur bæði fyrir:

  • 12V / 24V DC í ökutæki
  • 100–240V AC í heimahúsi eða sumarbústað

Hjartað í boxinu er Secop kælipressa, sem tryggir framúrskarandi afköst, hraða kælingu og áreiðanleika við allar aðstæður.

Helstu eiginleikar

  • 96L rúmtak
  • Kælir og frystir frá 10°C niður í -18°C
  • Dual zone – sjálfstæð stjórnun kælisvæða
  • Innbyggð USB hleðsla (1,5A)
  • Rafhlöðuvernd fyrir bíl
  • Virkar á 12V / 24V og 230V
  • Öflug Secop kælipressa
  • Tilvalið í jeppaferðir, útilegur og vinnubíla

Tæknilýsing

  • Módel: TR-NF-96L
  • Aflgjafi: AC 100–240V / DC 12V & 24V
  • Kælimiðill: R134a
  • Hitastig: 10°C til -18°C
  • Vinnuhitastig: 10–43°C
  • Nettóþyngd: 25,kg
  • Brúttóþyngd: 30 kg
  • Stærð: 97 x53. 2×46. 7cm
  • Pakkningastærð: 97. 4×60. 0x52. 1cm

Þér gæti einnig vantað…