Lýsing
Ný kynslóð af Big Energy kastljósunum er komin og tekur lýsingu á næsta stig. Strands Big Energy 2.0 býður upp á aukið drægi, endurbætt ljósamynstur og enn betri upplifun við akstur, hvort sem er á þjóðvegum, í myrkri eða við erfiðar aðstæður utan vegar. Með allt að 9100 raunlúmenum og allt að 600 metra drægi í Xperience mode skilar þetta 7” ljós gríðarlegri birtu og skýru ljósi langt fram á veginn. Ljósdreifingin hefur verið endurhönnuð til að gefa jafnara og þægilegra ljós sem minnkar álag á augun og eykur öryggi í akstri.
Big Energy 2.0 er einnig búið bæði hvítu og appelsínugulu stöðuljósi sem gefur bílnum nútímalegt og kraftmikið útlit. Í E-mode er ljósið E-samþykkt samkvæmt R148/R149 með viðmiðunartölu 20 og því löglegt til notkunar á vegum þar sem slíkar reglur gilda.
Big Energy kemur með 1000 mm kapli og DT-4 tengi sem einfaldar uppsetningu, auk þess sem létt og mjó hönnun gerir það sérstaklega hentugt fyrir fólksbíla, jeppa og minni atvinnubíla. Ljósið er framleitt úr áli og pólýkarbónati, með vottun samkvæmt IP67/IP69K sem tryggir mikla endingu og vörn gegn ryki og vatni. Það er einnig E-vottað samkvæmt R148/R149 með viðmiðunarstuðul 50.
Til að fullkomna útlitið er hægt að velja á milli hvítu eða appelsínugulu staðsetningarljósi. Með Big Energy færðu ekki aðeins kraftmikla lýsingu heldur einnig stílhreina viðbót við bílinn, á verði sem hentar öllum.
Upplýsingar um lit víra:
Svartur: Jörð
Rauður: Plús
Hvitur: Hvítt stöðuljós (plús)
Gulur: Appelsínugult stöðuljós (plús)
Grænn: E-mode
Hentar líka fyrir vinnuvélar og vörubifreiðar þar sem ljósin eru 10-32 volt
| Eiginleiki | Upplýsingar |
|---|---|
| Gerð ljóss | Ökuljós |
| Spenna (DC) | 10–32V DC |
| Fræðilegt afl | 105W |
| Orkunotkun | 98W |
| Virkni | Gulbrúnt stöðuljós, hvítt stöðuljós, kastljós |
| Orkunotkun eftir stillingu | X-mode: 98W / E-mode: 24W / Amber position: 6.5W / White position: 6W |
| Fræðileg ljósbirta | 10.000 lm |
| Raunljósbirta | 9.100 lm |
| 1 lux við | 601 m |
| Litarhiti | 5700K |
| Ljósdreifing | Extended Beam |
| Geislahorn | 11.7° |
| Tengingar | DT-4PIN |
| Lengd kapals | 550 mm |
| Litur á húsi | Svart |
| Litur á linsu | Glær |
| LED litur | Hvítur / Gulbrúnn |
| Efni í festingu | Ryðfrítt stál |
| Efni í húsi/chassis | Ál |
| Efni í linsu | Polycarbonate |
| Lengd | 176.7 mm |
| Dýpt | 66.6 mm |
| Hæð | 162.4 mm |
| Hæð með festingu | 184.6 mm |
| Þyngd | 1.88 kg |
| Vatns- og rykvörn | IP69K |
| Vinnsluhitastig | -40°C til +60°C |
| E-samþykkt | Já |
| ECE staðlar | R10.06, R148, R149 |
| Viðmiðunartala | 20 |











