TOYOTA LAND CRUISER AT42

kr. 7.390.000

Svo hægt sé að koma öflugum 42” jeppadekkjum undir Land Cruiser 150 til að hann geti fjaðrað í torfærum þarf að búa til enn meira pláss. Þetta er gert með því að síkka fjöðrunarbita að framan, síkka afturfjöðrun og færa afturhásingu lengra aftur. Ennfremur þarf að auka svigrúm í hjólskálum og færa til búnað undir vélarhlíf. Breiðir og háir brettakantar prýða bílinn og ný innri bretti verja hjólaskálar og búnað fyrir innan. Spindlar og fjöðrun að framan eru styrkt til að takast á við aukna yfirferð og álag sem myndast vegna stærri jeppadekkja.

Land Cruiser 150 AT42 er notaður jafnt af fjallafólki, vinnuflokkum og björgunarsveitum við afar fjölbreyttar aðstæður.

Helstu breytingar:

  • Hækkar um 145 mm undir lægsta punkt
  • Klafasíkkun framan 60mm, færsla fram um 50 mm
  • Upphækkun á fjöðrun 40mm
  • Síkkun á fjöðrun að aftan 60mm + hásingarfærsla 160mm
  • Lenging á drifsköftum fr/aft
  • Lenging á stýrisstöng + vottorð
  • Styrking á spindlum framan
  • Hlífðarpönnur 3mm stál, 2 stk, frá framstuðara og aftur fyrir aftari hjólabita
  • 30 mm hækkun á yfirbyggingu
  • Festing fyrir yfirbyggingu hækkuð undir hvalbak
  • Stuðarabiti að framan hækkaður
  • Breyting á hjólaskálum að framan og aftan svo fullt fjöðrunarsvið haldist – nýtir 100% slaglengd í Bilstein eða BP51 dempurum
  • Samlitir brettakantar
  • Ný innri brettri
  • Stærri aurhlífar
  • Ný gangbretti
  • Breyting á rúðuvökvakút
  • 42” dekk og 17×12 álfelgur
  • 1:4.88 drifhlutföll
  • Hraðamælisbreytir
  • Slökkvitæki og sjúkrapúði
  • Hjólastilling
  • Sérskoðun og vigtun
  • Átaksmælir með festingu
  • Arctic Trucks merki
Flokkur: Brand:

Lýsing

Svo hægt sé að koma öflugum 42” jeppadekkjum undir Land Cruiser 150 til að hann geti fjaðrað í torfærum þarf að búa til en meira pláss. Þetta er gert með því að síkka fjöðrunarbita að framan, hækka afturfjöðrun og færa afturhásingu aftar. Ennfremur þarf að auka svigrúm í hjólskálum og færa til búnað undir vélarhlíf. Breiðir og háir brettakantar prýða bílinn og ný innri bretti verja hjólskálar og búnað fyrir innan. Spindlar og fjöðrun að framan eru styrkt til að takast á við aukna yfirferð og álag sem myndast vegna stærri jeppadekkja.