Lýsing
TRE 75 lítra eldsneytistankurinn er hannaður fyrir Jeep Wrangler JL og er fullkomin uppfærsla fyrir þá sem vilja lengja drægni og minnka þörfina á tíðum stoppum. Með aukinni eldsneytisgetu getur þú ferðast lengra, hvort sem er á þjóðvegum eða í krefjandi hálendisferðum. Tankarnir eru hannaðir til að standast erfiðar aðstæður og tryggja að þú komist bæði á áfangastað og til baka.
Settið kemur með öllu sem til þarf til að tengja tankinn í bílinn eins og t-stykkjum, hosum, eldsneytismæli og nema, rafkerfi sem og leiðbeiningum um hvernig skal setja tankinn í.
ATH!
- Eftir uppsetningu skal framkvæma prófun á áfyllingu eldsneytis til að ganga úr skugga um að enginn leki sé í eldsneytislögnum, að eldsneytisdælan virki rétt og að eldsneytismælirinn sýni rétt gildi.
- Þegar eldsneytistankurinn hefur dælt eldsneyti yfir í aðaltankinn og enn er eldsneyti eftir í aukatankinum, skal slökkva handvirkt á dælu tanksins.
- Eldsneytismælirinn er með sjálfvirka aflslokun þegar aukatankurinn tæmist. Þegar mælirinn nemur að tankurinn sé tómur slekkur hann sjálfkrafa á rafmagni eftir 2 mínútur.
