Lýsing
Loftlæsing í framdrif frá TRE4x4, sérstaklega hönnuð fyrir Suzuki Jimny 2003 og nýrri. Þessi læsing tryggir hámarks grip þegar aðstæður verða krefjandi, hvort sem um er að ræða snjó, drullu, grjót eða erfiðar hálendisleiðir.
Með loftstýrðri læsingu færðu fulla stjórn á framdrifinu og getur læst mismunadrifinu þegar þörf er á auknu gripi, sem eykur akstursgetu og öryggi utan vega verulega. Tilvalin uppfærsla fyrir þá sem vilja bæta jeppann fyrir krefjandi aðstæður og hámarka getu hans í torfærum.
Tæknilýsing
- Gerð: TRE4x4 TR206
- Fyrir: Suzuki Jimny 2003 og nýrri
- Splines á öxli: 22
- Þvermál öxuls: 23,9 mm (0,94″)
- Drifhlutfall: Öll hlutföll
