Lýsing
Vatnshelt 55 lítra mjög sterkbyggt geymslubox framleitt úr LLDPE skel sem kemur með þéttingum fyrir vatnsheldni og læsingum gerðum fyrir hengilás. Flatur botn sem auðveldar mjög stöflun og hentar mjög vel þegar boxin eru sett á toppgrindur eða aðra flata staði. Boxin eru með ryk-/vatnsheldri þéttingu sem tryggir að búnaðurinn þinn haldist alltaf verndaður, sama hvernig veður eða landslag er. Boxið kemur einnig með upptakara áföstum á hliðinni. Festingar í loki bjóða upp á möguleika á að setja molle panela eða töskur í lokið. Mjög sterkbyggð geymslubox sem þola töluverðan þunga ofan á sig, einnig eru úrtök í lokinu fyrir strappa til að auðvelda festu í boxin.


