Lýsing
Vatnshelt 83 lítra mjög sterkbyggt geymslubox framleitt úr LLDPE skel sem kemur með 2x pumpum í loki, þéttingum fyrir vatnsheldni og læsingum gerðum fyrir hengilás. Flatur botn sem auðveldar mjög stöflun og hentar mjög vel þegar boxin eru sett á toppgrindur eða aðra flata staði. Boxin eru með ryk-/vatnsheldri þéttingu sem tryggir að búnaðurinn þinn haldist alltaf verndaður, sama hvernig veður eða landslag er. Boxið kemur einnig með drentappa og upptakara áföstum á hliðinni. Festingar í loki bjóða upp á möguleika á að setja molle panela eða töskur í lokið. Mjög sterkbyggð geymslubox sem þola töluverðan þunga ofan á sig, einnig eru úrtök í lokinu fyrir strappa til að auðvelda festu í boxin.
Tækniupplýsingar:
Þyngd: 11 kg
Lengd: 129cm
Breidd: 49cm
Hæð: 19.8cm