Yamaha Ténéré 700 – 2026
kr. 2.990.000
Yamaha Ténéré 700 er klassíska „do-it-all“ ævintýrahjólið fyrir íslenskar aðstæður: malbik yfir í möl, vindasamt heiðarveður, langar leiðir og ófyrirsjáanlegt undirlag. Hjartað er 690cc CP2 vélin (EU5+) sem er stillt og gíruð sérstaklega fyrir Ténéré, og nú með YCC-T rafstýrðri inngjöf sem gerir hjólið mýkra í viðbragði og betri í stjórn í öllum aðstæðum.
Til að laga hjólið að ferðinni færðu tvo aksturskosti (Sport og Explorer) og getur slökkt á ABS og spólvörn (TCS) þegar þú vilt meira „control“ á möl eða lausum slóðum. Þetta er sérstaklega hentugt þegar þú ert að leita að gripi á íslenskri möl, í þurrum vikri eða á grófum vegköflum.
Ramminn og yfirbyggingin eru hönnuð fyrir raunveruleg ferðalög: léttur tvöfaldur stálrammi, grannt og þétt form, flatt sæti og endurhannaður tankur – allt til að gera hjólið lipurt, auðvelt að hreyfa undir þér og þægilegt á löngum dögum.
🔗 PDF Bæklingur
🔗 Aukahlutir
Ekki til á lager