Yamaha Tracer 7 GT – 2025
kr. 3.050.000
Yamaha TRACER 7 GT er sport-touring hjól sem passar sérlega vel við íslenskan veruleika: langir kaflar, mikill vindur, breytilegt veður og blanda af malbiki og malarvegum. Hjólið er knúið af hinni skemmtilegu 689cc CP2 vél sem er þekkt fyrir sterkt tog og mjúka aflrás – þannig að hjólið er bæði afslappað í daglegum akstri og sprækt þegar þú vilt meira fjör.
GT-útgáfan er hönnuð með ferðalög í huga og kemur með hörðum hliðartöskum, hærri framrúðu, comfort-sæti, hitahandföngum og miðjustandi – allt atriði sem skipta miklu þegar þú ert að hjóla lengra, keyra á köldum morgnum eða vilt vera tilbúinn fyrir “íslenskar” aðstæður.
🔗 PDF Bæklingur
🔗 Aukahlutir
Ekki til á lager