Yamaha Wolverine® RMAX™2 1000 Sport – 2026
kr. 5.250.000
Yamaha Wolverine RMAX2 1000 Sport er 2ja sæta buggy sem er smíðaður fyrir hraðari og “sportlegri” slóðakeyrslu, en með þeim búnaði og stýringu sem nýtist fullkomlega í íslenskum aðstæðum þar sem þú ferð oft úr harðri möl yfir í grjót, bleytu og jafnvel krapa á sama túr. Hjartað er 999cc, 2-sílendra, og paraður við Ultramatic® skiptinguna með all-wheel vélarhemlun og 10 ára reimábyrgð – sem þýðir minna vesen og meira gaman.
Þú stillir karakterinn með Drive-Modes (Sport / Trail / Crawl), og í gripi er hann með On-Command® sem býður Turf Mode, 2WD, 4WD og 4WD með Diff-lock þegar þarf að “læsa sig” áfram. Fjöðrunin er alvöru sport: stillanlegir FOX® 2.0 piggyback, og EPS stýrið er stillanlegt í þrjár aðstoðarstillingar fyrir nákvæmari stjórn. Í praktík er þetta líka nytsamlegt tæki með 272 kg burð á palli, 907 kg dráttargetu, 350 mm veghæð og 35L tank – klárt fyrir bæði ævintýri og alvöru verkefni.
- 5 ára ábyrgð
- 10 ára ábyrgð á drifreim
🔗 PDF Bæklingur
🔗 Aukahlutir
Ekki til á lager