Yamaha Wolverine® RMAX™4 1000 Compact LE – 2026

kr. 5.610.000

Yamaha Wolverine RMAX 4 1000 Compact LE er frábær kostur fyrir þá sem vilja alvöru RMAX-afköst og 4 sæti, en í þéttari og liprari “Compact” pakka – sem hentar sérstaklega vel þar sem slóðar eru þröngir, beygjur krappar og aðstæður breytilegar (klassískt Ísland). Hann er knúinn af 999cc, 2-sílendra vél og er með Drive-Modes (Sport / Trail / Crawl), svo þú velur hvort þú vilt sprækari viðbrögð, rólegri torfærustillingu eða hámarks stjórn við hægan “tæknikafla”.

Í gripi og stjórn er þetta líka mjög “íslenskt” tæki: On-Command drifkerfi með Turf Mode gerir hann mýkri og auðveldari í beygjum á grasi og viðkvæmum undirlagi, og FOX® 2.0 iQS demparar eru rafstillanlegir beint úr sætinu svo þú aðlagar fjöðrunina á ferðinni þegar þú ferð úr harðri möl í grjót, bleytu, aur eða snjó. Undir stendur hann svo á 29” Carnage dekkjum sem eru hönnuð fyrir gróft undirlag.

  • 5 ára ábyrgð
  • 10 ára ábyrgð á drifreim

🔗 PDF Bæklingur
🔗 Aukahlutir

Ekki til á lager

Fá tölvupóst þegar vara kemur aftur á lager

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.
Flokkar: , Brand:

Lýsing

  • Vél – 999cc, 2-sílendra – Fjórgengis
  • Skipting og gírar – Ultramatic® Reimdrifin – L/H/R
  • Stýri – Rafmagnsstýri, stillanlegt
  • Drif – 2WD, 4WD, Diff-lock, Turf-Mode
  • Blautvigt – 934 kg
  • L x B x H – 3.255 x 1.677 x 2.110
  • Hæð frá jörðu – 340 mm
  • Bensíntankur – 35L
  • Sæti – 4-Manna
  • Fjöðrun framan – FOX QS3 Rafstillanlegur – 361 mm
  • Fjöðrun aftan – FOX 2.0 iQS Rafstillanlegur – 337 mm
  • Dekk framan – 29x9R14
  • Dekk aftan – 29x11R14
  • Skráning – Dráttarvélaskráð – Hvít númer