Lýsing
Strands Siberia XP Driving Light 7″ er kraftmikill LED-kastari í nettari stærð sem skilar frábærri lýsingu bæði á vegi og utan hans. Hann er með Extended beam geisla sem gefur breiða og öfluga lýsingu fram á við, og býður upp á tvo hami: E-mode fyrir þægilega/götulöglega notkun og Xperience-mode þegar þú vilt hámarks birtu í myrkri og krefjandi aðstæðum. Í E-mode skilar hann 1.540 raunveruleg lúmen og í Xperience-mode allt að 5.710 raunveruleg lúmen, með drægni 342 m / 662 m (1 lux) eftir stillingu.
Kastarinn er einnig með hvítu eða gulu stöðuljósi og sér “Hello” virkni fyrir stöðuljósið, sem gerir bílinn sýnilegri og gefur skýra “signatúru” í útliti. Hann er byggður til að þola harða notkun með IP68/IP69K vörn gegn ryki og vatni, og einfaldri uppsetningu með DT-4 tengi og 150 mm kapli.
Helstu atriði
-
Tveir hamir: E-mode / Xperience-mode
-
1.540 / 5.710 raunveruleg lúmen (E / Xperience)
-
Drægni @ 1 lux: 342 m / 662 m
-
Stöðuljós: hvítt eða gult + sér “Hello” virkni
-
Vörn: IP68/IP69K
-
Tenging: DT-4, 150 mm kapall
-
Samþykktir: E-approved skv. ECE R149 (R112), ECE R148 (R7) og EMC ECE R10
Upplýsingar um lit víra:
Svartur: Jörð
Rauður: Plús
Hvitur: Hvítt stöðuljós (plús)
Gulur: Gult stöðuljós (plús)
Hentar líka fyrir vinnuvélar og vörubifreiðar þar sem ljósin eru 9-32 volt




