Lýsing
Strands Siberia XP 9″ er öflugur LED-kastari fyrir langdrægan ljósgeisla sem hentar frábærlega á jeppa, vinnubíla og ferðabíla þar sem þú vilt sjá langt fram fyrir þig í myrkri. Hann býður upp á tvo stillihami: E-mode fyrir götulöglega notkun og Xperience-mode þegar þú vilt hámarks birtu utan alfaraleiða. Í E-mode skilar hann 3.080 raunveruleg lúmen og í Xperience-mode allt að 15.030 raunveruleg lúmen, með drægni upp á 330 m / 711 m (1 lux) eftir stillingu.
Kastarinn er líka með stöðuljós í hvítu eða gulu og sérstaka “Hello” virkni sem gerir þér kleift að gefa skýr merki með stöðuljósinu. Hönnun og frágangur er gerð fyrir alvöru notkun; álhlíf, polycarbonate linsa og há vörn gegn ryki/vatni (IP68/IP69K) ásamt E-merkingum fyrir viðeigandi notkun. Tengingar eru einfaldar með DT-4 tengi og stuttri kapallengd fyrir snyrtilega uppsetningu.
Helstu atriði
-
Tveir hamir: E-mode (götulöglegt) og Xperience-mode (hámark)
-
3.080 / 15.030 raunveruleg lúmen og 330 m / 711 m @ 1 lux
-
Hvít eða gul stöðuljós + “Hello” virkni
-
IP68/IP69K, 11–40V DC, DT-4 tengi
-
E-merkingar/staðlar: ECE R149 (R112), ECE R148 (R7), EMC ECE R10
Upplýsingar um lit víra:
Svartur: Jörð
Rauður: Plús
Hvitur: Hvítt stöðuljós (plús)
Gulur: Gult stöðuljós (plús)
Hentar líka fyrir vinnuvélar og vörubifreiðar þar sem ljósin eru 9-32 volt


