Lýsing
TRE skúffukerfið er snjöll og vönduð lausn fyrir skipulag og geymslu í jeppum. Kerfið er hannað til að nýta rýmið í bílnum til fulls og veitir þægilega, örugga og skipulagða geymslu, hvort sem er í ferðalögum, vinnu eða útivist. Með fjölbreyttum útfærslum er hægt að aðlaga kerfið að þínum þörfum.
Hvort sem þú ert á leið upp á hálendi, í veiðiferð, vinnuverkefni eða lengri ferðir, þá hjálpar skúffukerfið þér að halda öllu snyrtilegu og öruggu í bílnum. Verkfæri, ferðabúnaður, dráttarbúnaður, loftdælur, tjaldútbúnaður eða eldhúsbúnaður, allt fær sinn stað og er alltaf við höndina þegar á þarf að halda. Skúffurnar eru sterkbyggðar og hannaðar til að þola mikla notkun og krefjandi aðstæður, jafnvel við akstur á grófum slóðum og hálendisvegum. Þetta er lausn sem hentar einstaklega vel í jeppa eins og Land Cruiser.




