TRE pallgrind hálf hæð universal

kr. 114.900

TRE pallgrind í hálfri hæð. Pallgrindin er hönnuð fyrir þá sem vilja hámarka nýtingu og burðargetu pallbílsins, hvort sem um er að ræða ferðalög á hálendinu, vinnu eða overland-uppsetningar. Hún breytir pallinum í fjölhæfa burðarlausn þar sem auðvelt er að festa aukabúnað og skipuleggja farangur á skilvirkan hátt.

Aðeins 1 eftir á lager

Vörunúmer: tretrmbr-sv-h Flokkar: , Merkimiðar: , Brand:

Lýsing

TRE pallgrind í hálfri hæð. Pallgrindin er hönnuð fyrir þá sem vilja hámarka nýtingu og burðargetu pallbílsins, hvort sem um er að ræða ferðalög á hálendinu, vinnu eða overland-uppsetningar. Hún breytir pallinum í fjölhæfa burðarlausn þar sem auðvelt er að festa aukabúnað og skipuleggja farangur á skilvirkan hátt.

Grindin er byggð upp í módúlakerfi sem gerir þér kleift að sérsníða uppsetninguna að þínum þörfum. Þú getur bætt við eða breytt lausnum eftir notkun hvort sem það er tjald á þaki, geymslukassar, recovery búnaður eða annar ferðabúnaður.

Pallgrindin er framleidd úr léttu en sterku álblendi með anodized yfirborðsmeðferð sem veitir góða vörn gegn tæringu og íslenskum aðstæðum. Hún býður upp á mikla burðargetu og er hönnuð til að standast bæði daglega notkun og krefjandi utanvegaakstur. Með fjölbreyttum festingarmöguleikum er hægt að setja á grindina búnað eins og þaktjöld, skyggni, ljós, hjól, kajaka eða eldsneytis- og vatnstanka, sem gerir hana að fullkominni lausn fyrir bæði ævintýri og vinnu.

Tæknilegar upplýsingar

  • Burðargeta (jafndreift):
    • 200 kg í hörðum utanvegaakstri
    • 400 kg á vegi
    • allt að 800 kg kyrrstætt
  • Breidd: stillanleg ca. 1430–1800 mm
  • Lengd: 1390 mm
  • Hæð: 394 mm
  • Efni: Álblendi (anodized)

Þér gæti einnig vantað…