Lýsing
TRE pallgrind í fullri hæð. Pallgrindin er hönnuð fyrir þá sem vilja hámarka nýtingu og burðargetu pallbílsins, hvort sem um er að ræða ferðalög á hálendinu, vinnu eða overland-uppsetningar. Hún breytir pallinum í fjölhæfa burðarlausn þar sem auðvelt er að festa aukabúnað og skipuleggja farangur á skilvirkan hátt.
Grindin er byggð upp í módúlakerfi sem gerir þér kleift að sérsníða uppsetninguna að þínum þörfum. Þú getur bætt við eða breytt lausnum eftir notkun hvort sem það er tjald á þaki, geymslukassar, recovery búnaður eða annar ferðabúnaður.
Pallgrindin er framleidd úr léttu en sterku álblendi með anodized yfirborðsmeðferð sem veitir góða vörn gegn tæringu og íslenskum aðstæðum. Hún býður upp á mikla burðargetu og er hönnuð til að standast bæði daglega notkun og krefjandi utanvegaakstur. Með fjölbreyttum festingarmöguleikum er hægt að setja á grindina búnað eins og þaktjöld, skyggni, ljós, hjól, kajaka eða eldsneytis- og vatnstanka, sem gerir hana að fullkominni lausn fyrir bæði ævintýri og vinnu.
Tæknilegar upplýsingar
- Burðargeta (jafndreift):
- 200 kg í hörðum utanvegaakstri
- 400 kg á vegi
- allt að 800 kg kyrrstætt
- Breidd: stillanleg ca. 1430–1800 mm
- Lengd: 1390 mm
- Hæð: 523 mm
- Efni: Álblendi (anodized)








