Lýsing
TRE pallgrind í hálfri hæð með opnanlegum hliðum og rennipalli. Pallgrindin er hönnuð fyrir þá sem vilja hámarka nýtingu og burðargetu pallbílsins, hvort sem um er að ræða ferðalög á hálendinu, vinnu eða overland-uppsetningar. Hún breytir pallinum í fjölhæfa burðarlausn þar sem auðvelt er að festa aukabúnað og skipuleggja farangur á skilvirkan hátt.
Grindin er byggð upp í módúlakerfi sem gerir þér kleift að sérsníða uppsetninguna að þínum þörfum. Þú getur bætt við eða breytt lausnum eftir notkun hvort sem það er tjald á þaki, geymslukassar, recovery búnaður eða annar ferðabúnaður. Innbyggður rennipallur auðveldar aðgengi að búnaði í pallinum og gerir hleðslu og losun einfaldari, á meðan opnanlegar hliðar með gasdempara tryggja fljótlegt og þægilegt aðgengi að farangri úr öllum áttum.
Pallgrindin er framleidd úr léttu en sterku álblendi með anodized yfirborðsmeðferð sem veitir góða vörn gegn tæringu og íslenskum aðstæðum. Hún býður upp á mikla burðargetu og er hönnuð til að standast bæði daglega notkun og krefjandi utanvegaakstur. Með fjölbreyttum festingarmöguleikum er hægt að setja á grindina búnað eins og þaktjöld, skyggni, ljós, hjól, kajaka eða eldsneytis- og vatnstanka, sem gerir hana að fullkominni lausn fyrir bæði ævintýri og vinnu.
Tæknilegar upplýsingar
- Burðargeta (jafndreift):
- 200 kg í hörðum utanvegaakstri
- 400 kg á vegi
- allt að 800 kg kyrrstætt
- Burðargeta rennipalls: 150 kg
- Breidd: stillanleg ca. 1430–1800 mm
- Lengd: 1390 mm
- Hæð: 394 mm
- Efni: Álblendi (anodized)







